Friday, June 27, 2008
Söllagrill
Stefnt er að fyrsta Söllagrilli sumarsins fyrstu helgina í júlí. Hvernig hentar sú tímasetning ykkur?
Tuesday, June 24, 2008
Fjármögnun
Væri ekki vit að reyna að fjármagna félagið með einhverjum hætti? Væri ekki sniðugt að taka lán í jenum og/eða svissneskum frönkum? Er ekki líklegt að krónan sé að nálgast botninn margfræga?
Flott að taka lán upp á svona 80 milljónir til 40 ára eftir ca. hálft ár og kaupa eins og eitt stykki raðhúsalengju af verktaka í fjárkröggum.
Við getum svo leigt lengjuna út og reynt að halda út þangað til markaðurinn lagast. Lánið reynum við svo að borga upp á svona 30 árum og þá verður þetta bara eintóm gleði og hamingja í ellinni.
Datt bara í hug að starta umræðu um fjárfestingar þar sem þetta á að heita fjárfestingafélag. Endilega komið með innlegg.
Thursday, June 12, 2008
Monday, June 02, 2008
Fastur tími í sumar
Sælir,
Við Hössi vorum að ræða um leigu á völlum í sumar og útibolta. Þar sem að útlit er fyrir að ekki náist nægileg stemmning fyrir að leigja Fífuna þýðir ekkert annað en að finna aðra lausn. Það sem að við komum niður á var að við ættum sem fyrst að finna fastan fótboltaspilunartíma sem við stefnum á að spila alltaf á í sumar og svo vonumst við bara eftir góðu boltafæri. Korteri fyrir áætlaðan boltatíma fara svo leitarteymi af stað frá Söllagrenunum (Vesturbær+Nes, Fossvogur o.s.frv.) og leita að lausum sparkvöllum á sínu svæði. Með háþróuðu samskiptakerfi láta leitarteymin svo hvert annað vita þegar laus völlur finnst og hin teymin taka stefnuna á lausa sparkvöllinn. Með þessu fyrirkomulagi ætti hámarksárangur að nást þar sem að strax frá upphafi náum við að kanna gífurlegan fjölda sparkvalla, og samkvæmt lögmáli hins mikla fjöldi ætti e-r þeirra að vera laus. Hvert leitarteymi ætti að ráða yfir bolta svo hægt yrði að byrja spilun strax, þá losnum við við hættuna af því að fullir 12 ára strákar reyni að reka okkur í burtu með ofbeldi.
Þá er það spurningin; Hvernig líst mönnum á þetta og hvaða fasta boltatíma ættum við að stefna að?
P.S. Það er mjög gott að fara í fótbolta hér í Fælledparken, vellirnir eru oftast lausir svo að ykkur langar í bolta um helgina mæli ég eindregið með Danmörku...

Sunday, June 01, 2008
Bolti kl. 20:30?
Valhúsaskóli eða einhver stærri völlur ef margir eru áhugasamir? Til?
Því fljótari og meiri viðbrögð, því meiri líkur á boltanum auðvitað.
Monday, May 26, 2008
Leigja völl í sumar?
Sælir, Söllar. Það er oft erfitt að smala mönnum í bolta á sumrin og því hefur þeirri hugmynd verið fleygt fram að við leigjum gervigrasvöll. Rósant Ísak hafði samband við Fífuna sem er yfirbyggður gervigrasvöllur í Kópavogi. Hún á nokkra lausa tíma, m.a. klukkan 20:00 á miðvikudögum. Hvert skipti kostar 6.000 krónur og við fáum afnot af fjórðungi vallarins í klukkutíma. Þetta ætti að henta vel fyrir hóp af okkar stærð og eflaust væri pláss fyrir nýja sumarsölla. Er áhugi fyrir þessu? Látið í ykkur heyra. Þessi tímasetning er örugglega ekki sú eina sem kemur til greina.
Að mínu mati hefur þetta fyrirkomulag tvo stóra kosti. Í fyrsta lagi yrðum við með fastan vikulegan tíma og losnuðum því við hina hvimleiðu og óskilvirku boltasmölun. Í annan stað þyrftum við ekki lengur að leita um allan bæ að lausum sparkvelli.
Tuesday, May 06, 2008
Ferðatilhögun?
Jæja litlu ferðasöllar! Það væri gaman að sjá hverju aðrir eru að missa af með því að sýna okkur gróft ferðaplan. Þó það væri nú ekki nema á hvaða hóteli þið eruð á og svo videre.
Annars segi ég sjálfur góða skemmtun og góða ferð.
ÞS
Tuesday, April 22, 2008
Næstu laugardagar
Sælir, Söllar. Við skuldum íþróttahúsinu 16.500 krónur. Á Söllareikningnum góða eru hins vegar 17.393 krónur og því eigum við samtals 893 krónur. Hver laugardagsbolti kostar 3.000 krónur og því er ljóst að við höfum ekki efni á næsta laugardag, nema við fáum okkur bara sælgæti.
Hvað viljum við taka marga innibolta til viðbótar? Eftir tæpar tvær vikur fara margir Söllar í laugardagspróf og því held ég að sá laugardagur sé ónýtur. Hins vegar virtist vera almennur hugur í mönnum að taka einn lokainnibolta næsta laugardag. Hann væri þá jafnframt síðasti innibolti þeirra Sölla sem halda út í heim í haust. Hvað segið þið, kæru Söllar? Eigum við að taka einn bolta í viðbót? Við þyrftum þá að fjármagna hann með einhverjum hætti (mér dettur hlutavelta í hug). Að sjálfsögðu er stefnan svo tekin á a.m.k. vikulegan útibolta í sumar.
Monday, April 14, 2008
Wednesday, April 09, 2008
Einn, tveir og Söllenbergers
A.m.k. ég, Svenni og Hössi erum búnir að kaupa miða til Barcelona án forfallatryggingar. Þar með eru hjólin byrjuð að snúast allsvakalega. Nú þurfa aðrir bara að drífa í að panta miða og staðfesta.
Við þurfum nefninlega að fá tölu á þetta svo hægt sé að panta íbúð.
Friday, April 04, 2008
Hugmyndir um hótel
Nú verðum við að skoða þetta af alvöru og helst að finna þetta um helgina.
Höldum áfram að bæta í safnið:)
Saturday, March 22, 2008
Eg veit ekki hvern vid vorum ad reyna ad bloffa...
...hverjum datt annad i hug en ad vid faerum til Tekklands i utskriftarferd 2008?
Kv,
Kafka
Subscribe to:
Posts (Atom)