Í dag gerði ég mér ferð vestur í bæ, heimsótti íþróttahús Háskólans eins og lofað var og ræddi við starfsfólkið. Ég spurðist fyrir um lausa tima í íþróttasalnum og fékk að skoða planið þeirra. Þá sá ég að 15:45 á laugardögum var laus tími og ég lét til leiðast og bókaði þann tíma. Vert er að taka fram að þetta er einfaldur tími en ekki tvöfaldur eins og tíðkast hefur síðustu ár.
Ég vil því fá að vita hversu margir sjá sér fært að mæta í þennan tíma og ætlast til að menn noti athugasemdakerfið til þess.
Ég vil minna menn á að við þurfum lágmark 8-10 í hvern bolta þannig að við verðum að sjá til þess að það verði alltaf þessi lágmarksfjöldi sem mætir.
Hvað segja menn, á ég að negla tímann eða ekki?
Sveinn.
Saturday, October 04, 2008
Tuesday, September 30, 2008
Jæja kallar!
Þar sem að ég þarf að halda mér í formi andlega og líkamlega vil ég að allir kommenti og segi sína skoðum um að panta annað hvort einn bolta-tíma eða tvo. Það kemur sem sagt ekki til greina að það verði ekkert um bolta í vetur. Það væri algjör synd að missa þetta niður.
Elska ykkur líka rúsínubossarnir mínir.
Wednesday, September 10, 2008
Ekkiheimsendabolti
Jæja,
Lítið varð fyrir heimsendanum sem við áttum von á í morgun, legg því til að við höfum bolta annað kvöld til að fagna því að heimurinn sé enn til staðar en einnig til að kveðja Bezier sem fer út á laugardaginn. Hvernig hljómar kl. 18 á Lindó?

Monday, September 08, 2008
Heimsendabolti
Eins og allir vita verður heimsendir á miðvikudagsmorgunn. Eru ekki allir til í heimsendabolta annað kvöld?
Sunday, August 17, 2008
Friday, August 15, 2008
Söllakveðjuhóf
Sælir, söllar. Eins og þið allir vitið þá munu nokkrir söllar yfirgefa landið í haust og halda út í hinn stóra heim. Þessa sölla þarf að kveðja og því verður haldinn sölladagur á morgun, laugardag. Gróft plan er svohljóðandi: Byrjum daginn á því að horfa á handboltaleikinn sem hefst klukkan 12:40, síðan skellum við okkur í söllasund í Vesturbæjarlauginni, borðum svo pitsu á Eldsmiðjunni og loks förum við heim til Hlyns þar sem við drekkum, syngjum og skemmtum okkur við undirleik ipods Hemma. Hvernig lízt ykkur á þetta? Hverjir sjá fram á að geta tekið þátt? Nánari tímasetningar munu birtast sem athugasemdir.
Tuesday, August 05, 2008
Söllar á Gay Pride?
Í gær kviknaði eftirfarandi hugmynd:
Um næstu helgi er Gay Pride hommagangan. Hvernig væri ef við myndum sýna samkynhneigðum samstöðu með því að mæta allir niður í bæ söllabúningum og ganga svo fylktu liði niður Laugaveginn með glænýjan söllafána?
Thursday, July 31, 2008
Tuesday, July 29, 2008
Sunday, July 20, 2008
Tuesday, July 15, 2008
Friday, July 04, 2008
Uppfærsla
Eftirfarandi aðilar hafa greitt grill + stofngjald þegar þetta er skrifað (kl. 18:17 föstudaginn 4. júlí):
*Ásgeir
*Brynjar
*Kári
*Vilhjálmur Alvar
Eins og sjá má eru þetta ekki nærri því allir sem ætla sér að koma á morgun svo ég hvet ykkur til að ganga frá greiðslu sem allra fyrst. Stefnan er að fara í búð eftir hádegi á morgun svo að mikilvægt er að þetta verði greitt fyrir hádegi á morgun eða ég látinn vita ef menn ætla að mæta en hafa ekki greitt.
Til að það komi fram í færslu en ekki bara athugasemdakerfi eru makar velkomnir með á morgun, þetta yrði þá fyrsta Fjölskyldu-Söllagrillið. Stefnan er svo sett á bolta á morgun í kringum 14, sund eftir boltann og svo heim til Brynjars en nánari tímasetningar verða auglýstar í kvöld eða á morgun.
--- Uppfærsla kl. 21:30 ---
Því miður er ég ekki með auðkennislykilinn við hendina svo ég get ekki uppfært listann yfir þá sem eru búnir að borga. Hins vegar er orðið ljóst hvernig planið á morgundeginum verður. Matarnefnd fer og kaupir inn kl. 13:00 en fæstir sem lesa þetta þurfa að hafa áhyggjur af því. Síðan er stefnt að stofnfundsbolta kl. 14:15 á stóra gervigrasinu við Neslaug sem stendur yfir í ca. tvo tíma, þegar hann er búinn kl. 16:15 löbbum við svo út af vellinum og beint í sund. Sundið er ca. einn og hálfur tími svo kl. 17:45 ættum við að vera farnir upp úr lauginni. Þá eru tveir möguleikar í stöðunni sem mönnum er frjálst að velja á milli, annars vegar að fara beint til Binna og vera komnir þar kl. 18:00 sem krefst þess að menn hafi þau föt sem þeir vilja vera í um kvöldið með í bolta og sund, eða þá að menn fari heim til sín aftur, skipti um föt og komi svo til Binna. Þeir sem taka seinni kostinn eru beðnir um að vera komnir til Binna kl. 19 helst (nema þá þeir sem eru löglega afsakaðir). Kl. 19 ætti eldamennskan að vera komin vel á veg og menn byrjaðir að sulla í bjór, fyrstu búrgerarnir ættu að byrja að snarka á grillinu kl. 19:20 og þeir ættu að koma af grillinu kl. 19:30 þegar fyrstu Söllar ættu að fá sinn fyrri búrger. Að mati loknum verður svo almenn drykkja og svall eins og segir í uppkasti að lögum félagsins.
Kv,
Ásgeir

Subscribe to:
Posts (Atom)