Sunday, June 25, 2006

Hættum þessari vitleysu

Einhverjir muna eflaust eftir ferð vestur á Snæfellsnes síðasta sumar. Aðrir muna jafnvel eftir ferð sem var farin fyrir tveimur árum. Þeim Söllum sem fannst skemmtilegt þá, og hafa áhuga á, langar mig til að bjóða vestur helgina 15. og 16. júli. Eins og alltaf þá er möguleiki á veiði, golfi, súperfrisbí, sundferðum og eða gönguferðum auk þess sem skriðkólfurinn verður á svæðinu. Síðan geta menn bara grillað og drukkið Jameson. Ég lofa jafnframt góðu veðri umrædda helgi

7 comments:

Anonymous said...

Ekki bara redda ég EPÓ, heldur bróður hans líka sem ég hitti um helgina!

-Ásgeir

Anonymous said...

Þess má geta að Epó er loksins kominn heim eftir vel heppnaða Þýskalandsferð. Hann er með alskegg.

Anonymous said...

Pant stóra rúmið líka..

Anonymous said...

Pant vera í nýja leisíbojstólnum sem afi Jóns var að fá sér.

Anonymous said...

Ég er búin að lofa Salvöru að sofa við hliðina á þér í þetta skiptið, Sveinn.
Pant eldhúsgólfið!

Anonymous said...

Þá heiti ég því að dagblöðum verður dreift!

EPÓ

Anonymous said...

Ég er því miður að vinna aðra hverja helgi í sumar og þessi helgi er meðal þeirra.

 
web statistics